Íshokkífólkið okkar erlendis að gera góða hluti

Silvía, Herborg, Saga og Sunna
Silvía, Herborg, Saga og Sunna

Nú er íshokkítímabilið að hefjast vítt og breitt um heiminn og undirbúningstímabilið hjá íshokkífólkinu okkar erlendis í fullum gangi. Við eigum 5 stúlkur sem spila í 1. deildinni í Svíþjóð og spiluðu þær allar sínu fyrstu leiki með nýjum liðum um helgina og skemmtileg tilviljun að þær mætust einmitt allar á sama mótinu. Silvía og Sunna Björgvinsdætur byrjuðu tímbailið vel og hrósuðu sigri í MonkeySports bikarnum með liði sínu Södertälje en þær röðuðu einnig inn stigum fyrir sitt lið. Silvía skoraði 3 mörk og átti eina stoðsendingu og var næst stigahæsti leikmaður mótsins. Sunna var með 3 stoðsendingar og fjórði stigahæsti leikmaður mótsins og fékk einnig mikið lof fyrir varnarleikinn sinn og þá sérstaklega í úrslitaleiknum. Ragnhildur Kjartansóttir og lið hennar Färjestad spiluðu til úrslita gegn Södertälje og náði Ragnhildur að opna markareikninginn í fyrsta leik mótsins en Ragnhildur er sóknarsinnaður varnarleikmaður af bestu gerð. Saga Margrét Blöndal og Herborg Geirsdóttir spiluðu sem lánsleikmenn með Vesteras í mótinu en báðar eru þær á mála hjá Troja/ljungby og þóttu standa sig vel á mótinu. 

Drengirnir okkar eru einnig að gera góða hluti í Svíþjóð en Unnar Hafberg Rúnarsson hefur hafið leik með nýja liðinu sínu, Sollentuna U-18, og er búin að skora sín fyrstu mörk fyrir liðið. Uni Steinn Sigurðarsson hefur einnig dvalið í Svíþjóð við æfingar í ágúst og hefur fengið að æfa og spila með Trjoja/Ljungby U-15 og U-18 liði þeirra. Uni endaði dvöl sína þar um helgina með því að skora gullfallegt mark í sínum síðasta leik með liðinu. Þá er Axel Orongan komin aftur til Falu IF í Svíþjóð eftir eins árs dvöl í Bandaríkjunum. Gunnar Arason hélt svo ytra á föstudag en hann er á sínu öðru tímabili með A21 Academy í Kanada í vetur. Við munum fylgjast vel með okkar leikmönnunum á erlendri grundu í vetur og birta fréttir um framgang þeirra. Nokkrar skemmtilegar fréttir hafa verið fluttar af komu okkar leikmanna erlendis og þær má skoða með því að smella á nafn leikmannanna í þessari frétt.