Karfan er tóm.
Í kvöld, miðvikudagskvöldið 28. mars, leika Víkingar og Fífurnar undanúrslitaleik á Íslandsmótinu í
krullu.
Við fáums vellið klukkutíma fyrr en venjulega á miðvikudagskvöldum - heflun hefst kl. 20.00 og því ætti leikurinn að geta hafist um kl. 20.30.
Í undanúrslitaleiknum í kvöld mætast Víkingar og Fífurnar. Þar sem Víkingar enduðu ofar í deildarkeppninni hefur liðið val um síðasta stein, en Fífurnar val um lit á steinum.
Sigurliðið úr þessari viðureign leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn Mammútum á laugardag. Tapliðið leikur um bronsverðlaun við Fálka, einnig á laugardag.