Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir setti nýtt met á sínu fyrsta móti í Advanced Novice

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir lauk fyrr í kvöld keppni á Tirnavia Cup með 86.88 stig og hafnaði hún í 4. sæti. Ísold var í sinni fyrstu keppni í advanced novice og gerði sér lítið fyrir og sló stigamet flokksins um 0.40 stig sem staðið hafði frá byrjun árs 2015. Þrátt fyrir mistök í stutta prógraminu átti Ísold stórgott frjálst prógram með 2A og 3S bæði á underrotate.

Við óskum Ísold Fönn og foreldrum innilega til hamingju með árangurinn.