Andlát: Jan Kobezda

Fyrrum íshokkíþjálfari hjá SA hann Jan Kobezda er látinn 41 árs að aldri. Jan Kobezda þjálfaði hjá Skautafélaginu þrjú tímabil á árunum 2004-2006 en bróðir hans Michal Kobezda lék einnig með Skautafélagi Akureyrar um margra ára skeið.

Jan dó langt fyrir aldur fram í blóma lífsins þar sem hann var aðalþjálfari hjá stórveldinu Ducla Trencin í Slóvakíu. Jan var aðeins 41 árs gamall og lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Skautafélag Akureyrar vottar fjölskyldu hans sína dýpstu samúð.