Kæru iðkendur og foreldrar í 3.-7. hóp

Hér eru nokkur atriði sem þjálfarar vilja koma á framfæri:

Við viljum minna á afístímana, teygjur og skokk sem eru á tímatöflunum hjá 3.-7. hóp. Það hefur verið frekar slæm mæting hjá mörgum iðkendum og viljum við reyna að snúa því við. Þetta eru mjög mikilvægir tímar og líka skemmtilegir. Þjálfarar fylgjast vel með því hverjir eru að mæta og hverjir ekki. Þessir tímar eru nauðsynlegir fyrir alla iðkendurna (afístímatöflu til upprifjunar er að finna undir "lesa meira").

Klæðnaður á æfingum skiptir miklu máli. Klæðast skal þröngum buxum eða pilsi/kjól, þröngri hettulausri peysu eða langermabol, hár skal alltaf vera tekið vel frá andliti, alls ekki flegnir bolir eða mjög síðir bolir, treflar, klútar eða "stórir" skartgripir eða annað sem getur flækst, muna að koma í góðum íþróttaskóm á æfingar.

Hvetjum iðk til að fara snemma að sofa fyrir morgunæfingar bæði á fimmtudögum og sunnudögum.

Iðkendur þurfa að borða eitthvað létt ca. 1 ½ klukkustund áður en æfingar hefjast alla daga, nema á fimmtudagsmorgnum þá er í lagi að borða eitthvað lítið um leið og vaknað er, morgunæfingarnar þennan dag eru alltaf léttar.

Borið hefur á því að hlutir hverfi úr töskum, biðjum um að iðkendur komi ekki með verðmæti á æfingar og láti töskur og eigur annarra vera.

Minnum á opnu ístímana á föstudögum og sunnudögum.

Bráðlega verður auglýstur fundur fyrir iðkendur þar sem farið verður yfir gildi upphitunar, teygjuæfinga og afístíma, verður auglýst á heimasíðu og mikilvægt að allir mæti.

Hvetjum fólk til að fylgjast alltaf vel með heimasíðunni og mótaskrá.

 

 

Hér eru þeir afístímar sem hver hópur á:

 

7. hópur
• Afís hjá Söruh mánudaga 16:30-17:20
• Afís hjá Helgu miðvikudaga 20:05-20:35
• Dans á fimmtudögum
• Skokka í 10 mín og teygja á föstudaga 19:00-19:25
• Teygja á sunnudaga 20:05-20:25

6. hópur
• Afís hjá Söruh mánudaga 15:40-16:30
• Skokka í 10 mín og teygja á miðvikudaga 19:10-19:35
• Dans á fimmtudögum
• Afís hjá Helgu föstudaga 17:20-17:50
• Teygja á sunnudaga 19:00-19:20

5. hópur
• Afís hjá Söruh mánudaga 15:00-15:40
• Afís hjá Helgu miðvikudaga 17:20-17:50
• Dans á fimmtudögum
• Skokka í 10 mín og teygja á föstudaga 16:35-17:00
• Teygja á sunnudaga 18:05-18:25

4. hópur
• Afís hjá Gyðu Dröfn miðvikudaga 16:35-17:15
• Dans á fimmtudögum
• Skokka í 10 mín og teygja á föstudaga 15:35-16:05
• Afís hjá Ólöfu María laugardaga 13:05-13:50

3. hópur
• Afís hjá Gyðu Dröfn mánudaga 16:15-16:55
• Skokka og teygja á miðvikudaga 15:50-16:10
• Dans á fimmtudögum
• Teygja á föstudaga 14:50-15:10
• Afís hjá Guðnýju Ósk laugardaga 12:05-12:50