Krullan byrjar mánudaginn 1. sept

Fyrsta reglulega æfing í krullu verður mánudaginn 1. september n.k.

Að fenginni reynslu fyrri ára  var ákveðið að byrja ekki æfingar fyrr en 1. september að þessu sinni, þó tímataflan taki gildi 18 ágúst. Ef einhverjir vilja nota sér tíma okkar fram til 1 sept. þarf að láta  Viðar vita með góðum fyrirvara. (minnst sólahring ) Við eigum okkar tíma eins og verið hefur með þeirri breytingu að heflun á mánudögum hefst kl 19:00.   Eftir fyrstu léttu æfingu 1 sept. er ráðgert að boða til fundar um starfið í vetur og eru allar tillögur vel þegnar. Senda má póst á undirritaðan á hallgrimur@isl.is með tillögum um hvað sem er varðandi starfsemina í vetur. Nánari upplýsingar síðar.  Hallgrímur Valsson formaður krulludeildar.