Kynning á þjálfarateymi Listhlaupadeildar

Við viljum kynna fyrir ykkur þjálfara teymið okkar í vetur. Heiða verður þjálfari skautaskólans og 4. hóp í vetur og bjóðum við hana velkomna  hún kom til okkar í sumar og búin að vera með 3 námskeið sem öll hafa gengið mjög vel. Darja verður áfram yfir þjálfari hjá okkur og sér um þjálfun á 1.- 3. hóps og aðstoðar Heiðu einnig. Bergdís verður með Darju með 3. hóp og mun sjá um upphitun og afís æfingar hjá 3. hóp mánudag og miðvikudag ásamt afís æfingar hjá 2. hóp sömu daga. Við bjóðum Bergdísi velkomna til starfa. Gugga mun svo aðstoða Darju með 1. og 2.  hóp. Við bjóðum Guggu einnig velkomna til starfa.

Við í stjórninni er mjög spennt fyrir komandi tímabili og vonumst til að sjá sem flesta á pre-season sem hefst á sunnudaginn og allir velkomnir. Tímabilið hefst svo föstudaginn 23. ágúst á morgunæfingu