Leikur Víkinga og SR aftur frestað vegna veðurs

vindaspá kl 12
vindaspá kl 12

Leikur Víkinga við SR í meistaraflokki karla sem var frestað síðasta þriðjudag en fara átti fram í kvöld hefur verið frestað í annað sinn vegna veðurs en ófært er milli Reykjavíkur og Akureyrar. Leikurinn hefur verið færður til næsta fimmtudags, 22. janúar og byrjar kl 19.30.

Í millitíðinni spilar þó Víkingar leik en Bjarnarmenn koma í heimsókn næstkomandi þriðjudag og sá leikur byrjar kl 19.30.