Nýr formaður hjá listhlaupadeildinni

Á fundi stjórnar LSA síðastliðin þriðjudag óskaði Halldóra formaður eftir lausn frá störfum af persónulegum ástæðum. Ingibjörg varaformaður tók við keflinu af Halldóru fram á vor. Við þökkum Halldóru góð störf í þágu félagsins og óskum henni góðs gengis í framtíðinni.