SA og Landsbankinn skrifa undir nýjan samstarfssamning

Í vikunni sem leið var undirritaður nýr samstarfssamningur milli SA og Landsbankans sem gildir til tveggja ára. Landsbankinn verður einn af aðalstyrktaðilum félagsins og hefur fengið merki sitt í ísinn framan við stúkuna.

Landsbankinn hefur um langt skeið verið viðskiptabanki Skautafélagsins en félagið er stoltur samstarfsaðili Landsbankans.  Samningar sem þessir eru mikils virði fyrir félagið og með þessum samningi verður Landbakinn stuðningsaðili allra flokka, bæði kvenna og karla. Ólöf Björk Sigurðardóttir formaður Íshokkídeildar og Arnar Páll Guðmundsson útibússtjóri Landsbankans á Akureyri handsala saminginn á myndinni hér að neðan og einnig nýtt merki Landsbankans í ísnum.