SA Víkingar - Björninn laugardag kl 16.30

Úr viðureign liðanna fyrr í vetur (mynd: EP)
Úr viðureign liðanna fyrr í vetur (mynd: EP)

SA Víkingar taka á móti Birninum í Hertz-deild karla laugardaginn 10. desember kl. 16.30 í Skautahöllinni á Akureyri. Björninn er í öðru sæti deildarinnar með 16 stig en SA Víkingar í því þriðja með 14 stig svo Víkingar geta með sigri haft sætaskipti við Björninn. Aðgangseyrir 1000 kr. og frítt fyrir 16 ára og yngri.

Strax á eftir leik Víkinga hefs leikur SA og Bjarnarins í 3. flokki eða um kl 19.00.