SA Víkingar komnir með einn sigur í úrslitakeppni karla

SA Víkingar fagna sigri (mynd: Þórir Tryggva)
SA Víkingar fagna sigri (mynd: Þórir Tryggva)

SA Víkingar unnu mikinn karakter sigur á Fjölni í fyrsta leik úrslitakeppni karla á laugardag. Sigurmarkið skoraði Andri Skúlason þegar aðeins 24 sekúndur voru eftir af leiknum.

Það var hart barist frá fyrstu mínútu og alvöru úrslitakeppnis íshokkí var í boði en bæði lið fengu að verma refsiboxið í nokkur skipti í fyrstu lotu. Hvorugu liðinu tóks að koma inn marki í lotunni og markverðir beggja liða sýndu frábæra takta og voru sjóðheitir í leiknum. Snemma í annarrri lotunni fengu SA Víkingar yfirtölu sem fór úrskeiðis þar sem Fjölnir náðu undirmannaðir að komast í góða skyndisókn sem endaði með marki þar sem Einar Guðnason þræddi pökkinn upp í markhornið og kom Fjölni í 1-0. Fjölnir voru því með góða stöðu fyrir síðustu lotuna en strax í upphafi hennar tók Axel Orongan á mikinn sprett og með frábæru einstaklings framtaki náði hann að jafna leikinn fyrir SA Víkinga. Það var mikil spenna alla síðustu lotuna þar sem liðin skiptust á að fá færi en þegar allt leit út fyrir að leikurinn færi í framlengingu þá skoraði Andri Skúlason glæsilegt mark með langskoti eftir góðan undirbúning Jóa Leifs og tryggði SA Víkingum sigur í fyrsta leik úrslitakeppninnar. 

SA Víkingar mæta Fjölni aftur á þriðjudagskvöld á heimavelli Fjölnis í Egilshöll kl. 19:45. Þriðji leikur úrslitakeppninnar verður svo á Akureyri á fimmtudagskvöld.