SA Víkingar tylltu sér á toppinn

SA Víkingar unnu gríðarlega sterkan sigur á Esju í gærkvöld í toppslag Hertz-deildarinnar. SA Víkingar sigruðu með 5 mörkum gegn 1 og náðu þar með eins stigs forystu á Esju í deildarkeppninn en hafa þá líka spilað tveimur leikjum minna en Esja. 

Það var mikið í húfi fyrir leik gærkvöldsins enda liðin tvö í mikilli baráttu um heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu frekar en fallegum leik en það voru SA Víkingar sem byrjuðu leikinn betur og náðu strax forystu á 7. mínútu leiksins með nokkuð skrautlegu marki frá Jóhanni Leifssyni. Skömmu síðar bætti Rúnar Eff Rúnarsson við öðru marki fyrir Víkinga þar sem hann lék laglega á varnarmenn og markvörð Esju og setti pökkinn snyrtilega í markið. Staðan var 2-0 fyrir Víkinga eftir fyrstu lotu en eina mark annarar lotu skoraði Egill Þormóðsson fyrir Esju og staðan 2-1 fyrir síðustu lotuna. Leikmenn Esju lentu í miklum refsivandræðum í leiknum vegna glæfralegra tæklinga og kjaftbrúks og þurftu að sitja af sér samtals 36 mínútur í leiknum. SA Víkingar gengu á lagið og skorðu þriðja mark leiksins en þar var að verki Ingvar Þór Jónsson en Jordan Steger og Bart Moran bættu svo við hvoru markinu fyrir sig og gengu endalega frá leiknum, lokatölur 5-1.

SA Víkingar eru nú með 48 stig í deildinni og eiga 4 leiki eftir en Esja er í öðru sætinu með 47 stig en eiga einungis tvo leiki eftir. SA Víkingum dugir því að sigra í tveimur af síðustu 4 leikjum sínum til þess að tryggja sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. Næsti leikur Víkinga er á þriðjudag þegar liðið heimsækir Björninn heim í Grafarvoginn en næsti heimaleikur er svo laugardaginn 3. mars en þá kemur lið Bjarnarins norður.