Sami Lehtinen ráðinn þjálfari SA á nýjan leik

Sami Lehtinen hefur verið ráðinn til hokkídeildar SA til ársins 2022 og tekur aftur við stöðu yfirþjálfara og þróunarstjóra hjá félaginu. Sami sem var yfirþjálfari hjá félaginu tímabilið 2019/2020 var aðstoðarþjálfari hjá HIFK í Finnlandi í vetur sem vann bronsverðlaun í finnsku úrvalssdeildinni nú á dögunum.

Sami þarf vart hann kynna en hann er öllum hnútum kunnur hjá félaginu. Sami kemur til með að vera yfirþjálfari meistaraflokka félagsins ásamt U18, U16 og U14. Sami hefur störf 1. ágúst og mun einnig sjá um sumarhokkískólann í samstarfi við Söruh Smiley.

Við bjóðum Sami hjartanlega velkominn aftur til starfa hjá SA og hlökkum mikið til að byrja að starfa aftur með honum.