Sigur á Tyrklandi í gær

Fagnað í lok leiks í gær
Fagnað í lok leiks í gær

Í gærkvöldi tók Ísland á móti Tyrklandi hér í Skautahölllinni á Akureyri og það er skemmst frá því að segja að leikurinn var næsta auðveldur, lokastaðan 6 - 0. Íslenska liðið spilaði vel og átti alltaf svar við því sem Tyrkirnir buðu uppá. Birta Helgudóttur skellt í lás og hélt markinu hreinu þá er víst ekki hægt að tapa leik.

Silvía Björgvinsdóttir hélt uppteknum hætti í framlínunni og setti þrennu, Sunna Björgvinsdóttir og Teresa Snorradóttir skoruðu einnig og svo var það Hilma Bóel Bergsdóttir, yngsti leikmaður liðsins sem skoraði sitt fyrsta landsliðmark. Stoðsendingar áttu Saga Blöndal, Silvía Björgvinsdóttir, Brynhildur Hjaltisted, Guðrún Viðarsdóttir og Herborg Geirsdóttir.

Aðrar leikir í gær fóru þannig að Ástralía rúllaði yfir Króatíu, 15 - 0 og Nýja Sjáland sigraði Úkraínu 5 - 3.

Mótið heldur áfram í dag með þremur leikjum. Kl. 13:00 mætast Ástralía og Úkraína, kl. 16:30 mætast Tyrkir og Nýsjálendigar og svo í kvöld kl. 20:00 mætir Ísland Króatíu.

Leikur íslenska liðsins hefur farið vaxandi og segja má að ef undan eru skildar fyrstu 30 mínúturnar af mótinu þá er liðið búið að spila mjög vel. Þjálfararnir eru vel undirbúnir og leikmennirnir einbeittir. Það er því virkilega skemmtilegt að fylgjast með þessu flotta íþróttafólki og sem fyrr þá hvetjum við fólk til að fjölmenna í stúkuna og styðja við bakið á íslenska kvennalandsliðinu kl 20:00 í kvöld.