Skautahöllin 20 ára

Skautahöllin er 20 ára um þessar mundir en hún var vígð af Ólafi Ragnari Grímssyni þann 1. mars 2000.  Það er óhætt að segja að tilkoma Skautahallarinnar hafi verið alger bylting fyrir starfsemi Skautafélagsins og þegar litið er til baka er ljóst að við höfum nýtt okkur vel þau tækifæri sem bætt aðstaða veitti okkur.  Íþróttagreinar félagsins hafa vaxið og dafnað og við höfum tekið framfaraskref ár frá ári. 

Áður en höllin var reist var baráttan við dyntótt veðurfarið að gera okkur svo erfitt fyrir, að þrátt fyrir að hafa verið með vélfryst útisvell síðan 1987/88, þá var staðan orðið þannig að starfsemi félagsins hefði jafnvel lagst alveg af ef ekki hefði verið ráðist í að byggja höllina.

Segja má að nýr kafli í sögu félagsins hafi byrjað árið 2000 og nú 20 árum síðar hafa félagsmenn og iðkendur aldrei verið fleiri og við erum svo lánsöm að vera ekki aðeins rík af iðkendum heldur einnig af ótrúlega stórum hópi fólks sem starfar í kringum félagið og leggur sitt af mörkum með einum eða öðrum hætti. 

Það hittist skemmtilega á að nú á 20 ára afmæli hallarinnar skyldi fara fram heimsmeistaramót í íshokkí kvenna hér á Akureyri en kvennalið SA er einmitt jafnaldri hallarinnar.  Þetta er í annað skiptið sem heimsmeistaramót kvenna er haldið hér á Akureyri (fyrst 2017) og er það til marks um það góða starf sem hér er unnið.  Á þessum 20 árum hefur meistaraflokkur kvenna unnið 18 Íslandsmeistaratitla og karlaliðið 14.  Þetta er árangur sem við erum stolt af og við erum ekki síst stolt af þeirri staðreynd að allir leikmenn í báðum meistaraflokkum eru uppaldir SA-ingar, að Söruh Smiley undanskilinni.

Það er jafnframt einstakt að á afmælisárinu skuli Aldís Kara Bergsdóttir, fyrst Íslendinga, vinna sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramóti unglinga í listhlaupi, en hún hélt utan nú fyrr í mars og stóð sig afskaplega vel.  Hún braut þar blað í skautasögunni en hún varð einnig fyrsti fulltrúi félagsins til að verða valin íþróttakona Akureyrar nú um síðustu áramót.  Þessi árangur Aldísar gerir okkur öll gríðarlega stolt en við gerum því skóna að með henni hafi verið grannt fylgst að handan, því ekki má gleyma því að forvígismenn félagsins voru fyrst og fremst áhugamenn um listhlaup, þó vissulega hafi íshokkíið slæðst með.  Gamlir heiðursfélagar líkt og Gunnar Thorarensen, Ágúst Ásgrímsson, Jón Dalmann og Ingólfur Ármannsson svo einhverjir séu nefndir, hefðu glaðst mikið við að verða vitni að þessum tímamótum.

Í tilefni tímamótanna bauð stjórn félagsins til kaffisamsætis þann 29. febrúar, fyrir lokaleik heimsmeistaramótsins á milli Íslands og Úkraínu.  Veislan var vel sótt af félagsmönnum, gömlum sem nýjum auk þess sem fulltrúar frá ÍSÍ og bæjarstjórn mættu á svæðið.  Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ sagði nokkur orð sem og Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar.  Frammi lágu teikningar af nýrri og glæsilegri félagsaðstöðu sem samþykkt hefur verið að hefjast handa við á næstu misserum, vonandi strax á næsta ári.   Við fengum sérstakt leyfi frá Alþjóða Íshokkísambandinu til þess að vera með smá uppákomur í leikhléum þessa síðasta leik mótsins í tilefni tímamótanna.  Í fyrra leikhléi skautaði Aldís Kara og í því seinna var spilaður míní íshokkíleikur milli tveggja stúlknaliða hvar allir leikmenn voru undir 10 ára aldri.