Suðurferð frestað, innanfélagsmót í staðinn


Helgarmóti í 4. flokki frestað, innanfélagsmót hjá 4. flokki og 5A í staðinn.

Vegna veðurútlits er helgarmóti í 4. flokki, sem vera átti í Egilshöll núna um helgina, frestað um óákveðinn tíma. Í staðinn fær 4. flokkur og 5A innanfélagsmót hér heima, en þeirra hluta af innanfélagsmótinu var frestað um síðastliðna helgi vegna ófærðar.

Liðsskipan og leikjadagskrá (pdf-skjal). Athugið að í skjalinu eru einnig upplýsingar um leikina sem fram fóru sl. sunnudag. Næsta innanfélagsmót verður síðan 15.-16. desember.

Fyrsti leikur hefst kl. 8.10 á laugardagsmorguninn, en mótinu lýkur skömmu fyrir kl. 11.