Takk allir fyrir komuna á skautadaginn hjá listhlaupinu.

Skautadagurinn hjá listhlaupinu var haldinn í dag sunnudaginn 18.9. Boðið var upp á skautasýningu þar sem þær Rebekka Rós, Katrín Sól og Kristbjörg Eva sýndu prógrömmin sín. Að því loknu var opnað á ísinn þar sem þjálfararnir og skautararnir okkar tóku á móti gestum og sýndu þeim hvernig best er að bera sig að á ísnum.

Stjórn LSA bauð svo upp á vöfflukaffi sem rann ljúflega niður hjá gestunum.

Talsvert var tekið af myndum og munu þær birtast á síðunni á næstu dögum.

 Við þökkum öllum fyrir komuna og vonum að við sjáum sem flesta á æfingum hjá okkur í vetur.