Tímatafla 18. mars - 1. apríl

Nokkrar breytingar verða á tímatöflum deildanna og á almenningstímanum í Skautahöllinni á Akureyri næstu tvær vikurnar, en hefðbundnar æfingar og fyrri tafla tekur aftur gildi þriðjudaginn 2. apríl.

Opið verður fyrir almenning kl. 13-16 laugardaginn 23. mars og verður almenningstími styttri en venjulega þann dag þar sem þá fer fram þriðji leikur í úrslitakeppni Íslandsmóts karla í íshokkí á milli SA og Bjarnarins. Leikurinn hefst kl. 17.

Frá og með sunnudegi 24. mars til og með mánudegi 1. apríl (annar í páskum) verður opið fyrir almenning alla daga kl. 13-17. Athygli er vakin á því að ekkert skautadiskó verður á föstudaginn langa.

Tímatafla (allar deildir) vikuna 18.-24. mars.
Tímatafla (allar deildir) vikuna 25.-31. mars.

Hér má sjá tímatöflu listhlaupadeildar 18.-24. mars.