Vinamót Frost 2020

Um helgina fór fram fyrsta mót vetrarins í listhlaupi. Mikil eftirvænting var eftir þessu móti þar sem ekki hefur verið keppt í listhlaupi á Íslandi síðan í janúar 2020.

Frostmótið fór fram laugardaginn 26.september alls voru um 40 keppendur mættir til leiks. Bæði í hópum fatlaðra, sem og ófatlaðra. Í yngstu flokkunum er ekki raðað í sæti.

Skautafélag Akureyrar átti 4 keppendur í flokknum 8 ára og yngri stúlkur, þær Freyju Ingibjörgu Rögnvaldsdóttur, Helgu Mey Jóhannsdóttur, Kristbjörgu Heiðu Björnsdóttur og Ronju Valgý Baldursdóttur. Í flokknum 10 ára og yngri stúlkur átti Skautafélag Akureyrar 3 keppendur þær Heiðbrá Heklu Sigurgeirsdóttur, Heiðrúnu Ernu Birgittudóttur og Ingu Fjólu Baldursdóttur. Þá var komið að keppni í hópnum 12 ára og yngri. Þar átti Skautafélag Akureyrar einn keppanda hana Sölku Rannveigu Rúnarsdóttur sem hafnaði í 2.sæti. Stelpurnar okkar stóðu sig allar gríðarlega vel og óskum við þeim öllum til hamingju með árangurinn.

Úrslit mótsins.

12 ára og yngri stúlkur

  1. Selma Ósk Sigurðardóttir                             SR
  2. Salka Rannveig Rúnarsdóttir                       SA
  3. Júlía Lóa Unnard. Einarsdóttir                    SR

14 ára og yngri stúlkur

  1. Kayla Amy Eleanor Harðardóttir               Fjölnir
  2. Hanna Falksdóttir Krueger                          SR
  3. Hildur Emma Stefánsdóttir                         SR

15 ára og yngri stúlkur

  1. Bríet Eiríksdóttir                                              SR

 

Level 1. 16-21 árs dömur

  1. Védís Harðardóttir Öspin

22 ára og eldri konur

  1.  Snædís Egilsdóttir Öspin

Level II-11 ára og yngri stúlkur

 Hulda Björk Geirdal Helgadóttir Öspin

 Level II-22 ára og eldri konur

  1.  Þórdís Erlingsdóttir Öspin

Level III-16-21 árs dömur

  1. Nína Margrét Ingimarsdóttir Öspin

 Level IIII— 12-15 ára stúlkur

  1. Sóldís Sara Haraldsdóttir Öspin