Byrjendanámskeiðið í íshokkí hefst á sunnudag kl 12.00

Í maí stendur Skautafélag Akureyrar fyrir hokkínámskeiði fyrir krakka sem fæddir eru 2011-2013. Tímar verða á fimmtudögum og sunnudögum 7.-21. maí.
Námskeiðis samanstendur af 5 æfingum á tveimur vikum. Fyrsti tíminn verður 7.maí kl.12:00-12:50.
Verð er 3000 kr og er allur búnaður til staðar í Skautahöllinni.

Æfingatímar: 
Sunnudaga kl. 12:00-12:50 
Fimmtudaga kl. 16:50-17:30

Gott að mæta í minnsta lagi 30 mín fyrir fyrsta tímann til þess að finna búnað og klæða sig!

Skráning er hjá Hafþóri Andra á haffisigrunar@gmail.com