Hertz-deild karla: SA Víkingar - Björninn laugardag kl 16.30

SA Víkingar taka á móti Birninum í Skautahöllinni á Akureyri laugardaginn 7. október og hefst leikurinn kl 16.30. Liðin hafa mæst einu sinni í vetur á heimavelli Bjarnarins en þá höfðu Víkingar betur í stórkostlegum leik. Bæði lið hafa aðeins tapað einum leik í vetur og má búast við mjög spennandi leik. Mætum í stúkuna og styðjum okkar lið, aðgangseyrir 1000 kr. og frítt fyrir 16 ára og yngri.

SA Jötnar mæta svo Birninum í 3. flokki strax að loknum leik SA Víkinga kl 19.00.