Íslenska U-18 liðið mætir Spáni í dag kl 18.00

Íslenska U-18 liðið í íshokkí mætir Spáni í dag á heimsmeistaramótinu í Valdemora á Spáni en leikurinn hefst kl 18.00. Leikurinn er í beinni útsendingu á netinu en slóðina má finna hér.

Ísland tapaði naumlega fyrir Belgíu í fyrsta leik mótsins en vann Kína 5-3 á páskadag. Strákarnir okkar í SA hafa staðið sig vel en Matthías Már er búin að skora tvö mörk í mótinu, Heiðar Örn eitt og tvær stoðsendingar, Sigurður Freyr er með eitt mark og Axel Snær eina stoðsendingu.