Rebekka Rós Ómarsdóttir hafnaði í 2 sæti samanlagt í European criterium

Rebekka Rós Ómarsdóttir 2 sæti í Canazei
Rebekka Rós Ómarsdóttir 2 sæti í Canazei

Rebekka Rós Ómarsdóttir hafnað í 2 sæti í Canazei á Ítalíu. Mótið á Ítalíu er þriðja mótið sem þær stöllur Rebekka og Ísold fönn taka þátt í á mótaröðinni European Criterium.

Á fyrsta mótinu sem fram fór í Serbíu hafnaði Rebekka í fjórða sæti. Næst tók hún þátt í Sportland Trophy í Búdapest þar sem hún bar sigur úr bítum og í dag hafnaði hún svo í öðru sæti. Þessi glæsilegi árangur dugaði henni í annað sæti samanlagt.

Rebekka er búin að standa sig gríðarlega vel í vetur. Hún hefur sigrað á öllum mótum sem hún hefur tekið þátt í á Íslandi í vetur og endaði hún tímabilið hér heima með því að setja nýtt stigamet í 12 ára og yngri A á Vetrarmóti ÍSS um miðjan mars upp á 42.64 stig og lýkur svo tímabilinu með silfurverðlaunum á European Criterium.

Þetta er frábær árangur hjá þessari ungu skautakonu og óskum við henni og fjölskyldunni hennar innilega til hamingju.