SA TV - tilraunaútsendingar í gangi


Í dag er brotið blað í sögu Skautafélags Akureyrar með tilraunaútsendingum frá Minningarmótinu um Garðar Jónasson. 

Bein útsending verður í gegnum Ustream fram á kvöld frá leikjum á Minningarmóti um Garðar Jónasson. Hægt er að smella á tengilinn "SA TV" í valmyndinni hér til hliðar þegar farið er inn á forsíðu sasport-vefsins - eða smella hér. Enn eru smávægilegir byrjunarörðugleikar hjá okkur, en þó hægt að njóta þess að fylgjast með fremstu hokkíkonum landsins leika listir sínar.

Reynir Sigurðsson, stjórnarmaður í SA og fyrrum starfsmaður félagsins, á allan heiður af undirbúningi þessa verkefnis, en hann naut einnig liðsinnis hins góðkunna tæknimanns og körfuknattleiksmanns, Helga Hrafns Halldórssonar.