Æfingar leik og grunnskólabarna falla niður til 23. mars

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga. Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis, og í samráði við ríkisstjórnina að setja á tímabundna takmörkun á samkomum. Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

“Í samskiptum ÍSÍ við landlækni, sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur komið fram að vegna mikilla anna við að koma af stað starfi í leik- og grunnskólum landsins, í samræmi við þær reglur um nú gilda, hefur ekki náðst að ljúka undirbúningi fyrir þátttöku leik- og grunnskólabarna í íþróttastarfi. Því má gera ráð fyrir því að röskun verði á íþróttastarfi næstu daga þangað til íþróttafélög, skólasamfélagið og sveitarfélög hafa komið sér niður á lausnir til að halda úti starfi með þeim takmörkunum sem munu gilda næstu fjórar vikurnar. Í samskiptum við ofangreinda aðila hefur komið fram að til að unnt sé að undirbúa þetta verkefni og útfæra þær takmarkanir sem nú eru í gildi með fullnægjandi hætti væri heppilegt að gera ekki ráð fyrir því að íþróttastarf fyrir þennan aldurshóp fari af stað fyrr en mánudaginn 23. mars nk. ÍSÍ mælist til að farið verði eftir þessum tilmælum”

Þetta þýðir að allar æfingar leik- og grunnskólabarna falla niður hjá Skautafélaginu til 23. mars. Verið er að undirbúa og vinna í skipulagningu næstu viku en allir eldri hópar fá upplýsingar í gegnum þeirra síður um hvort og hvenær æfingar þeirra verða í þessari viku.