Karfan er tóm.
Önnur umferð Íslandsmótsins var leikin á mánudagskvöldið. Riddarar lögðu Víkinga 7 – 2 og í hinum leiknum áttust við Ice Hunt og Garpar þar sem Ice Hunt lagði Garpa örugglega 8 – 1. Þetta var jafnframt fyrsti tapleikur Garpa á tímabilinu. Ice Hunt leiðir Íslandsmótið með tvö stig eftir sigur í báðum sínum leikjum Riddarar og Garpar eru með eitt stig en Riddarar reiknast ofar með fleiri unna enda. Víkingar eru svo stigalausir í fjórða sæti.
Næstu leikir:
Víkingar og Garpar á braut 2
Riddarar og Ice Hunt á braut 4