Íslandsmót í kvöld: Fundinum í kvöld seinkað til 22.30

Vegna leiks Íslands og Króatíu á EM í handbolta er fyrirhuguðum fundi krullufólks vegna Íslandsmótsins seinkað þar til eftir æfingu, kl. 22.30. 

Jafnframt er minnt á að frestur til að skrá lið til leiks á Íslandsmótinu í krullu rennur út í kvöld. Sjá fyrri frétt hér á krulluvefnum um mótið.