SA Víkingar - Björninn laugardag kl 16.30

SA Víkingar taka á móti Birninum í Skautahöllinni á Akureyri laugardaginn 14. nóvember kl 16.30. Liðin hafa mæst þrívegis á tímabilinu og hefur Björninn haft betur tvívegis en SA einu sinni. SA Víkingar eru í öðru sæti deildarinnar með 20 stig fyrir leikinn en Björninn í því þriðja með 13 stig. 

Strax á eftir leiknum eða um kl 19 spilar 3.flokkur SA við Björninn.