3. leikur í úrslitakeppni karla í íshokkí á laugardag

3. leikur í úrslitakeppninni í íshokkí er á laugardag kl. 16:45 í Skautahöllinni. Staðan í einvíginu er 1-1 en þrjá sigra þarf til að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn. Miðaverð er 1500 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Hægt er að tryggja sér miða í forsölu í Stubb. Við hvetjum fólk til þess að mæta í rauðu og litum þannig stúkuna í okkar lit.

-Í 2. leikhléi verður keppt í pekkjakasti.
-Pizzusala í sjoppu svo engin þarf að fara svangur heim. Áfram SA!
 
Leikirnir í úrslitakeppninni:
 
Leikur 3: laugardaginn 26. mars á Akureyri kl. 16:45
 
4. leikur 29. mars í Reykjavík.
 
* 5 leikur 31. mars á Akureyri.
*   ef til kemur að annað liðið er ekki búið að vinna 3 leiki.