Karfan er tóm.
Núna í vikunni halda hokkíkrakkar í 4. flokki suður til Reykjavíkur til þátttöku í helgarmóti á vegum
Bjarnarins í Egilshöllinni. Mótið er að hluta liður í Íslandsmótinu í 4. flokki, en eins og áður hefur komið fram hér
á sasport hafa bæði A- og B-lið 4. flokks Skautafélags Akureyrar haft mikla yfirburði í vetur og hefur SA þegar tryggt sér
Íslandsmeistaratitilinn.
Tvö finnsk lið taka þátt í mótinu og eitt A-lið frá hverju íslensku félaganna, SA, SR og Birninum. Auk þess mæta SA og
Björninn til leiks með B-lið sem munu mætast. Erlendu liðin og íslensku A-liðin þrjú mætast og síðan leika fjögur efstu í
undanúrslitum (1v4 og 2v3) þar sem sigurliðin leika síðan til úrslita á mótinu. Það lið sem endar í fimmta sæti mun svo
mæta sameinuðu B-liði SA og Bjarnarins, sem þá heitir Cougars Iceland.
Mótið hefst reyndar í kvöld, þriðjudagskvöld, með leik Bjarnarins og SR. Áfram verður haldið síðdegis á fimmtudag, en fyrsti
leikur SA er gegn Birninum kl. 19.30 á fimmtudag. Lokaleikurinn hefst kl. 12.30 á sunnudag.
Leikjadagskráin.
Upplýsingar um ferðina sjálfa, ferðatilhögun, kostnað og annað hafa nú þegar borist foreldrum í tölvupóstum frá
Foreldrafélaginu.