Karfan er tóm.
Enn er tími til að skrá sig í skautabúðir ÍSS sem haldnar verða í Reykjavík í júní - umsóknarfrestur rennur út 1. apríl!!!. Helga Margrét, yfirþjálfari, mælir eindregið með því að allir sem sjái sér fært að fara í búðirnar drífi sig. Sérstaklega þar sem í búðnum verður að hennar mati mjög fær þjálfari sem heitir Olga Baranova. Auk þess að lengja skautatímabilið eins og hægt er til að vera samkeppnishæf við önnur félög. Sjá í lesa meira.
Þeir sem hafa nú þegar skráð sig fá póst á næstu dögum með nánari upplýsingum
Ennþá eru nokkur laus pláss áhugasamir geta sent inn póst á sumarbudir@skautasamband.is til 1. apríl
Gestaþjálfarar á námskeiðinu verða:
Olga Baranova kemur frá Finlandi og kennir A og B flokkum á ís í vku 1 og viku 2 og
Shelley Barnett kemur frá Kanada hún kennir einnig A og B flokkum á ís hluta úr degi ásamt því að sjá um alla kennslu á Synchro-hópum í viku 1 og viku 2
Ivan Kralic sem er frá Tékklandi en hann hefur verið yfirþjálfari í Danmörku í nokkur ár. Ivan var eini þjálfarinn í æfingabúðum ÍSS 2004 og hann kemur væntanlega í viku 2 og viku 3 nánar staðfest síðar.
Íslenskir þjálfarar munu sjá um kennslu í C flokkum á ís og að hluta í yngri A og B flokkum auk þess að sjá um afís æfingar hjá A, B og C undir handleiðslu erlendu þjálfaranna auk þess munu íslensku þjálfarar yngri Synchro-hópa vinna með Shelley á ís og afís æfingum hjá þeim flokkum.
Nánari upplýsingar verða birtar síðar