Æfingar hefjast hjá öllum flokkum

Þriðjudaginn 4. september n.k. hefjast æfingar hjá 4., 3., 2. flokki auk meistaraflokkanna og æft verður samkvæmt æfingatöflu síðasta árs.  Þriðjudaginn 11. september byrja svo 5., 6., 7. flokkur auk byrjendaflokks og verða æfingar einnig skv gömlu æfingatöflunni.

Tímataflan verður nánast óbreytt frá því í fyrra en ef einhverjar breytingar verða gerðar þegar líður á tímabilið þá verður það auglýst rækilega.  Denni og Smiley munu áfram sjá um alla þjálfun og Jón Gísla hleypur undir bagga fyrstu dagana.

Frekari upplýsingar veita Sveinn Björnsson yfirþjálfari í síma 899 0043 og Ólöf Sigurðardóttir formaður íshokkídeildar í síma 848 7577