Karfan er tóm.
Riðlakeppni lokið. Viðbót við fyrri frétt.
Það var engu líkara en að fráttaritari hefði sofnað ofaní lyklaborðið við skrif á síðustu frétt því aðeins var minnst á tvo leiki umferðarinnar eða þá sem skiptu mestu máli varðandi hvaða lið kæmust í undanúrslit. Ástæðan er að fréttaritarinn samdi fréttina strax um kvöldið og vildi koma frá sér helstu úrslitum og ætlaði að bæta úr daginn eftir en hreinlega gleymdi því. En eins og áður kom fram þá sigruðu nýliðarnir í Ullevål Bragðarefina 6 - 4 og Fífur sigruðu Svartagengið 10 - 4 . Skyttur sigruðu Garpa 6 - 4 en þetta var aðeins annar tapleikur Garpa á leiktíðinni. Víkingar lentu í kröppum dansi við Riddara. Þegar leikur hófst var Gísli leikstjórnandi Víkinga ekki kominn á staðinn og hófu Víkingar leikinn án Gísla. Það munar greinilega um Gísla því Víkingar töpuðu fyrstu umferðinni með 5 steinum. Riddarar unnu næstu umferð með tveimur steinum og voru komnir í 7-0 en þá vöknuðu Víkingar eða öllu heldur Gísli ( hann svaf yfir sig fyrir leik) og skoruðu 1-2-1 og 2 í síðustu lotu sem dugði þó ekki og Riddarar unnu því leikinn 7 - 6. Næstu umferði verða eftirfarandi: Braut Undanúrslit Mánudag 17 nóv 5 Víkingar 1A Ullevål 2B 4 Garpar 1B Fífur 2 A 3 Svartagengið 3 A Skyttur 4 B 2 Bragðarefir 3 B Riddarar 4 A Braut Úrslit Mánudag 24 nóv. leika um 2 sigurlið 1A 2B sigurlið 1B 2A 1 sæti 3 taplið 1A 2B taplið 1B 2A 3 sæti 4 sigurlið 3A 4B sigurlið 4A 3B 5 sæti 5 taplið 3A 4B taplið 4A 3B 7 sæti