Akureyrarmótið - munið að greiða þátttökugjaldið

Gjaldkeri Krulludeildar vill minna þátttakendur í Akureyrarmótinu á að greiða þátttökugjaldið, 5.000 krónur á lið, sem fyrst. Enn eiga nokkur lið eftir að greiða. Nú eru aðeins þrjár umferðir eftir af mótinu og að sjálfsögðu þurfa allir að greiða áður en mótinu lýkur. Mögulegt er að millifæra á netinu inn á reikning 0302-13-301232, kt. 590269-2989. Vinsamlega skráið í skýringu fyrir hvaða lið er greitt og sendið staðfestingu á netfangið davidvals@simnet.is. Einnig er að sjálfsögðu mögulegt að afhenda Davíð gjaldkera peninga beint, til dæmis mánudagskvöldið 7. janúar þegar 7. umferðin verður leikin.