Áramótamótið 2014

Áramótameistarar 2014
Áramótameistarar 2014

Áramótamótið 2014 fór fram síðastliðinn mánudag 29. desember. Dregið var í lið og skiptust 33 manns í 8 lið sem léku í tveimur riðlum.  Vanir og óvanir léku saman og mörg skemmtileg tilþrif sáust á svellinu.  Að endingu voru það svo Beauty and Beast sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Beauty and Beast var skipað Ara, Bjössa, Davíð og Óla.  Þar sem enn vantar nöfn (föðurnöfn) nokkurra keppenda verða þátttakendur ekki gefnir upp strax en um leið og allt er komið á hreint verða hér birt nöfn allra og úrslit leikja.  Það er svo vonandi að óvanir hafi skemmt sér það vel að þeir mæti á æfingar nú eftir áramót. Myndir frá mótinu má sjá inn á http://www.sasport.is/krulla/myndasofn/myndasofn