Ásynjur og 2. flokkur í tvöföldum tvíhöfða gegn SR um helgina

Bæði Ásynjur og 2. flokkur leika tvíhöfða gegn liðum SR um helgina þar sem leikið verður á laugardag og sunnudag. Allar æfingar hokkídeildar falla því niður vegna þessa fyrir hádegi á laugardag og sunnudag. 

Ballið byrjar á laugardaginn kl 16.30 þegar 2. flokkurinn spilar fyrri leik sinn gegn SR en Ásynjur spila strax á eftir þeim leik eða um kl 19.00. Sunnudagurinn hefst snemma en 2. flokks leikurinn hefst þá kl 8.00 og Ásynjur þar strax á eftir eða um kl 10.00. Það verðu nóg af hokkí fyrir hokkíþyrsta um helgina og við hvetjum fólk til þess að mæta á leikina en það er frítt inn á alla leiki.