Karfan er tóm.
Núna um helgina taka átta stelpur úr Listhlaupadeild SA þátt í alþjóðlegu listskautamóti sem fram fer í Skautahöllinni
í Laugardal. Mótið er hluti af íþróttahátíðinni Reykjavík International Games, eða RIG.
Æfingar verða á föstudag og síðan hefst keppni á laugardagsmorguninn og stendur fram á hádegi á sunnudag. Allar upplýsingar um keppnisröð og síðan einkunnir og úrslit má finna á tölfræðisíðu mótsins - sjá hér.
Stúlkurnar átta sem keppa fyrir hönd Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar eru:
8 ára og yngri A
Marta María Jóhannsdóttir
Rebekka Rós Ómarsdóttir
12 ára og yngri A
Emilía Rós Ómarsdóttir
Advanced Novice - stúlknaflokkur
Arney Líf Þórhallsdóttir
Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir
Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir
Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir
Sara Júlía Baldvinsdóttir
Novice B
Harpa Lind Hjálmarsdóttir