Karfan er tóm.
Átta liða úrslit Bikarmótsins fóru fram í gærkvöldi. Þrjú af þeim fjórum liðum sem komin eru í undanúrslit Akureyrarmótsins tryggðu sér einnig sæti í undanúrslitum Bikarmótsins. Riddarar eru eina liðið í undanúrslitum sem ekki er einnig í undanúrslitum Akureyrarmótsins, en þeir sigruðu Víkinga. Garpar unnu öruggan sigur á bikarmeisturunum í Svarta genginu, Skytturnar fóru áfram þar sem Üllevål gat ekki mætt með fullskipað lið og varð að gefa leikinn. Fífurnar unnu Mammúta.
Úrslit:
Riddarar - Víkingar 9-4
Svarta gengið - Garpar 0-12
Skytturnar - Üllevål, Üllevål gaf
Mammútar - Fífurnar 3-5
Undanúrslitin fara fram miðvikudagskvöldið 21. október. Dregið verður um það hvaða lið mætast í undanúrslium, annað hvort fyrir leikina í Akureyrarmótinu mánudagskvöldið 19. eða þegar liðin mæta til leiks í undanúrslitin miðvikudagskvöldið 21.