Byrjendanámskeið fyrir 3-6 ára í maí

Þriggja skipta skauta og íshokkí byrjendanámskeið fyrir krakka á aldrinum 3-6 ára verður haldið á sunnudögum í maí. Allur búnaður til staðar. 

Foreldrar eða forráðamenn eru beðnir um að koma á ísinn með börnum sem eru að prófa í fyrsta sinn, annað hvort á skautum eða á skóm. Endilega deilið þessu til þeirra sem gætu haft áhuga.

Upplýsingar um námskeiðið:

Verð 1.000kr

Dagsetningar sunnudagarnir 3., 10. og 17. maí kl 11:00-11:50

Nauðsynlegt er að skrá sig hjá Söru Smiley: 868-1640, hockeysmiley@gmail.com
og mæta minnst 25 mínútum fyrir fyrstu æfingu til þess að finna búnað sem passar.