Íslandsmótið, úrslitakeppni: SA-Ásynjur - Björninn

Áfram SA!
Áfram SA!


Fyrsti leikur í úrslitakeppni meistaraflokks kvenna verður í Skautahöllinni á Akureyri þriðjudagskvöldið 20. mars og hefst kl. 19.30.

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki hampar Íslandsmeistaratitlinum. Leikdagar hafa verið ákveðnir sem hér segir:

Þriðjudagur 20. mars: Skautahöllin á Akureyri kl. 19.30
Fimmtudagur 22. mars: Egilshöll kl. 19.30
Laugardagur 24. mars: Skautahöllin á Akureyri kl. 17.00
Þriðjudagur 27. mars: Egilshöll kl. 19.30 (ef þarf)
Fimmturdagur 29. mars: Skautahöllin á Akureyri kl. 19.30 (ef þarf)

Ástæða er til að hvetja jafnt félagsmenn og aðra Akureyringa til að fjölmenna í Skautahöllina og hvetja stelpurnar okkar til sigurs í þessari rimmu við Björninn. 

Við ætlum ekki að missa báða bikarana suður yfir heiðar!