Karfan er tóm.
Fyrsti leikur í úrslitakeppni meistaraflokks kvenna verður í Skautahöllinni á Akureyri þriðjudagskvöldið 20. mars og hefst kl.
19.30.
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki hampar Íslandsmeistaratitlinum. Leikdagar hafa verið ákveðnir sem hér segir:
Þriðjudagur 20. mars: Skautahöllin á Akureyri kl. 19.30
Fimmtudagur 22. mars: Egilshöll kl. 19.30
Laugardagur 24. mars: Skautahöllin á Akureyri kl. 17.00
Þriðjudagur 27. mars: Egilshöll kl. 19.30 (ef þarf)
Fimmturdagur 29. mars: Skautahöllin á Akureyri kl. 19.30 (ef þarf)
Ástæða er til að hvetja jafnt félagsmenn og aðra Akureyringa til að fjölmenna í Skautahöllina og hvetja stelpurnar okkar til sigurs í þessari rimmu við Björninn.
Við ætlum ekki að missa báða bikarana suður yfir heiðar!