Tveir leikir á laugardag

Mynd: Sigurgeir Haraldsson (20.11.2012)
Mynd: Sigurgeir Haraldsson (20.11.2012)


Það er sannkölluð hokkíhelgi framundan í Skautahöllinni á Akureyri. Jötnar og Ynjur taka á móti Bjarnarfólki á laugardag. Hokkíáhugafólk ætti ekki að láta þessa leiki framhjá sér fara. Á meðan þau eldri spila á Akureyri verða yngstu iðkendurnir í eldlínunni syðra.

Mfl. karla: Jötnar - Björninn
Jötnar hafa verið iðnir við að safna stigum það sem af er keppnistímabili, eru nú í 3.-4. sæti ásamt Víkingum með 12 stig, hafa unnið fjóra leiki og tapað tveimur. Þeir máttu játa sig sigraða gegn Húnum sl. þriðjudag (mynd: Sigurgeir Haraldsson).

Væntanlega má gera ráð fyrir að leikur þeirra gegn Birninum verði heldur  erfiðari, en vonandi gengur okkar mönnum betur að finna færi og ná skotum á markið á morgun en í leiknum gegn Húnum. 

Bjarnarmenn eru langefstir í deildinni með 17 stig, hafa unnið fimm leiki og einn að auki eftir framlengingu.

Leikur Jötna og Bjarnarins hefst kl. 16.30 á laugardag.

Tölfræði mfl. kk. (ÍHÍ)
Staðan, mfl. kk. (ÍHÍ)

Mfl. kvenna: Ynjur - Björninn
Strax að loknum karlaleiknum mætast Ynjur og Björninn í meistaraflokki kvenna. Þar má búast við hörkuleik á milli hins unga liðs Ynjanna og Bjarnarins, sem átt hefur í nokkrum vandræðum í vetur þar sem markvörður liðsins og landsliðsmarkvörður Íslands, Karítas Sif Halldórsdóttir, er í fríi og markvörður með mun minni reynslu en Karítas sem hefur leyst hana af.

Þessi lið mættust fyrir nokkru í Egilshöllinni og þá sigruðu Ynjur nokkuð auðveldlega, 1-10. Ynjur eru í 2. sæti í deildinni með 7 stig, hafa unnið tvo leiki, tapað einum í framlengingu og einum í venjulegum leiktíma. Björninn er í 3. sæti í deildinni með 6 stig, hafa unnið tvo leiki og tapað tveimur. (Mynd: Elvar Freyr Pálsson, 24.01.2012).

Tölfræði mfl. kvk. (ÍHÍ)
Staðan, mfl. kvk. (ÍHÍ)

Yngstu iðkendurnir á suðurleið
Á meðan þau eldri berjast bið Bjarnarfólk hér heima verða yngstu iðkendurnir, 5., 6. og 7. flokkur, í eldlínunni í Egilshöllinni þar sem fram fer helgarmót þessara flokka.

Það verður semsagt nóg um að vera fyrir hokkíáhugafólk, foreldra og leikmenn um helgina.