Curling Champions Tour í beinni

Baden Masters fer fram helgina 10.-12. september og hægt er að horfa á mótið í beinni á netinu.logo_curling_champions_tour_120

Mótið í Baden verður mjög sterkt og skartar frægum skipperum með lið sín. Þarna verður Ólympíumeistarinn 2006, Brad Gushue, sem fengið hefur til liðs við sig einn þekktasta krullumann Kanada, Randy Ferbey. David Murdoch, margfaldur heims- og evrópumeistari, tekur þátt í mótinu með nýja liðsmenn. Þarna verða einnig Thomas Ulsrud og silfurlið Noregs frá ÓL 2010, Svíinn Niclas Edin með landslið Svía, hollenska landsliðið sem vann sig upp í A-flokk á Evrópumótinu í fyrra, landslið Tékklands, nokkur sterk svissnesk lið og fleiri sterk lið. 

Smellið hér til að fara inn á vef mótsins þar sem hægt verður að fara inn á beina útsendingu þegar mótið hefst.