Emilía Rós í 10. sæti eftir stutta prógramið

Emilía Rós Ómarsdóttir átti góðan dag og er hún í 10 sæti að loknu stutta prógraminu og er það frábær árangur hjá henni, Marta María Jóhannsdóttir er í 17 sæti og Pálína Höskuldsdóttir í 19. sæti.
Á morgun föstudag hefja stelpurnar í Novice A keppni klukkan 8:45 að íslenskum tíma (9:45 að norskum tíma). Við munum fylgjast með og setja inn fréttir að lokinni keppni.
Gangi ykkur vel stelpur.