Evrópumótið: Fjórði sigurinn

Íslendingar unnu Serba 8-5 á Evrópumótinu í morgun.Serbar byrjuðu betur í morgun, komust tveimur stigum yfir eftir tvær umferðir. Íslenska liðið hélt ró sinni, jafnaði metin og náði svo undirtökunum í leiknum, komst í 6-3 og svo 8-5 en það voru lokatölur leiksins.

Íslenska liðið hefur unnið alla fjóra leiki sína á mótinu til þessa og situr eitt á toppnum. Næstir koma Slóvakar og Hvít-Rússar með þrjá vinninga og eitt tap. Íslendingar mæta einmitt Hvít-Rússum í seinni leik dagsins.