Evrópumótið: Úrslitaleikur í beinni á netinu

Áhugasamir geta horft á leik Slóvakíu og Hvíta-Rússlands í beinni á netinu.
Slóvakía og Hvíta-Rússland mætast í úrslitaleik C-flokks Evrópumótsins í krullu í dag og hefst leikurinn kl. 15.00 að íslenskum tíma. Okkar menn í Greenacres hafa tekið tæknina í sína þjónustu og senda leikinn beint út á netinu - smellið á tengilinn til að fara í beinu útsendinguna: http://www.ustream.tv/channel/5810873 - ef upp koma tæknilegir örðugleikar, hafið þá samband við Halla í s. 824 2778, gegnum Facebook eða með pósti á haring@simnet.is eða haralduring@hotmail.com.