Fer bikarinn á loft?

Brosum vonandi eftir leikinn. Mynd: Sigurgeir
Brosum vonandi eftir leikinn. Mynd: Sigurgeir


Lið SA á möguleika á að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Birninum í dag.

Þriðji leikurinn í úrslitaeinvígi SA og Bjarnarins í mfl. kvenna á Íslandsmótinu í íshokkí fer fram í Skautahöllinni á Akureyri í dag og hefst kl. 17.00.

SA hefur unnið báða leikina til þessa, fyrst 7-3 á Akureyri og síðan 1-5 í Egilshöll þannig að með sigri í dag geta stelpurnar okkar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.

Fyrir áhugafólk um íshokkí utan Akureyrar - og heimafólk sem ekki kemst á leikinn, er rétt að vekja athygli á því að hann verður sýndur beint á N4. Við munum jafnframt reyna að segja frá gangi leiksinis hér á heimasíðunni.

Mættu!