Karfan er tóm.
Um helgina fór fram MaggaFinns mótið í íshokkí í Skautahöllinni þar sem 9 lið heldri manna lið í blönduðum kynjum kepptu um MaggaFinns bikarinn eftirsótta. Mótið í ár markaði ákveðin tímamót því 20 ár eru síðan Magnús Einar Finnsson fyrrverandi formaður Skautafélags Akureyrar til margra ára lést en hann var meðal fyrstu manna sem tekin var inn í Heiðursstúku Íshokkísambands Íslands fyrir sín störf fyrir íshokkí á Íslandi.
Mótið í ár tókst einstaklega vel enda er mótstjórnin í höndum þeirra Ella og Margeirs í algjörum sérklassa og mótið í ár það allra fjölmennasta sem hefur verið haldið. Um 120 keppendur tóku þátt í mótinu í ár sem hófst á fimmtudagskvöldinu en leikið er langt fram yfir miðnætti bæði fimmtudag og föstudag og líkur svo á laugardagskvöldinu með veglegu lokahófi og skemmtiatriðum sem mótstjórnin á mikinn heiður af. SA Old Stars stóðu uppi sem sigurvegarar í ár eftir hnífjafna keppni við Gamla Björninn en úrslitin réðust á markahlutfalli þar sem munurinn var aðeins eitt mark. Þó keppniskapið sé oft mikið og þar reglulega farið þar yfir strikið þá gleymist það jafn harðan því flestir komnir til að skemmta sér og samgangur á milli keppenda og liða mikill. Það er rétt eins og í anda Magga Finns heitins sem var ávallt hrókur alls fagnaðar og mótið honum til heiðurs orðið einskonar árshátíð íshokkífólks á Íslandi.