Nú er Bikarmótinu lokið og stóðu stelpurnar sig með ágætum, eins og venja er! Helga Jóhannsdóttir kom heim með gull í Debs flokki, Sigrún Lind Sigurðardóttir fékk gull í Novice flokki, Guðný Ósk Hilmarsdóttir silfur í sama flokki og Audrey tók gullið með sér heim í Junior flokki. Frábær árangur hjá stelpunum! Til hamingju allar saman! Hér eru nokkrar myndir á síðu LSR frá mótinu!